Auglýsing

Könnun

Í hvađa sćti mun Dolles fc enda í utandeildinni í sumar?

Klukkan

Leit

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Sigur!

02. júní 2007 klukkan 16:05
Síðastliðinn fimmtudag hófst utandeildin fyrir alvöru og fyrsti leikur Dolles liðsins var á móti Greifunum. Liðið átti ekki í miklum erfiðleikum með að klára þann leik og endanleg staða var 3-1 Dolles í vil.

Leikmannahópurinn: Bjarni, Stefán Grétar, Gúst Línbergi, Kristján Eldjárn, Þorgnýr, Trausti Þór, Tryggvi Páll, Tryggvi ,,gamli", Arnar Grant, Róbert, Viðar Hólm.

Mörkin skoruðu: Tryggvi Páll, Arnar Grant og Trausti Þór

Næsti leikur liðsins er gegn Timburmönnum næsta fimmtudag en Timburmenn hafa sýnt og sannað að þeir eru eitt af toppliðum þessa móts.

Liðsbúningur Dolles er í bígerð og að öllum líkindum mun liðið spila í búningnum í leiknum gegn Timburmönnum.


Stjórn Dolles fc
Dolles FC
8 athugasemdir

Sigur!

18. maí 2007 klukkan 19:25
Dolles menn unnu frækin sigur á Hata mönnum fyrir rúmri viku. Leikurinn endaði 4-2 og mörkin skoruðu: Þorgnýr 2, Tryggvi Kristjáns og Stefán Grétar.

Það sem er að frétta úr herbúðum liðsins er að það er óðum að verða klárt fyrir utandeildina sem hefst þarnæsta fimmtudag.

Æfing á sunnudag!

og svo þarf hver og einn að borga 6500kr fyrir 12 á sunnudag.
mótsgjald er 65.000kr / 13 = 5000kr á mann
búningar = 1500kr á mann

kennitala: 070587-3199
565-14-102457
Dolles FC
1 athugasemd

Ćfingaleikur nćstkomandi fimmtudag klukkan 21:00

09. maí 2007 klukkan 13:38
Þá er komið að því, þriðji æfingaleikur Dolles er næstkomandi fimmtudag (10. maí) gegn utandeildarliðinu Hata. Leikurinn hefst klukkan 21:00 og sem fyrr eiga menn að mæta með þúsund kr.

Treyjumálin virðast einnnig vera komin á hreint en Stefán Grétar tók að sér að hanna Dolles merkið ( www.myspace.com/stebbi_g ) og mun búningurinn að öllum líkindum kosta 1500kr á mann ásamt því að keppnisgjaldið er 5000kr á mann og við þurfum að fara að borga þetta.


Dolles FC
9 athugasemdir

Stórafmćli

07. maí 2007 klukkan 16:33
Dolles menn nær og fjær óska Kristjáni til hamingju með tvítugsafmælið. Eins og flestum er kunnugt er Kristján stofnandi liðsins og heiðursforseti þess.

Minni menn svo á æfingu á Þriðjudag (morgun) en hún verður annaðhvort klukkan 17 eða 19:30. Einnig er ansi líklegt að það verði æfingaleikur næstkomandi fimmtudag gegn Hata. Það verður komið á hreint fyrir æfinguna á morgun.


Stjórnin
Dolles FC
4 athugasemdir

Annar sigurinn í röđ

05. maí 2007 klukkan 14:21
Síðastliðinn fimmtudag lék Dolles sinn annan æfingaleik gegn Narfa og báru Dolles menn sigur úr býtum. Leikurinn endaði 4-2 og spiluðu Dolles menn ágætlega þótt að það vanti töluvert upp á þeirra besta form.

Mörkin skoruðu: Trausti 2, robbi 1 og ,,Arnar Grant" 1.

Við viljum einnig bjóða til liðsins nýjan markmann en það er enginn annar en Arnar Sveinbjörnsson. Hann skrifaði undir síðastliðinn föstudag og kemur til með að standa í markinu næsta sumar, þá getur hann einnig spilað sem útispilari.

Næsta æfing liðsins er á sunnudaginn (morgun) og geta áhugasamir fylgst með henni.

Viljum einnig minna á linkinn leikmenn liðsins en þar gefur á að líta leikmenn liðsins.


Stjórnin
Dolles FC
Engin athugasemd

Fyrsti sigur sumarsins

30. apríl 2007 klukkan 19:21
Síðastliðinn fimmtudag lék Dolles fc sinn fyrsta leik en liðið háði harða baráttu gegn utandeildarliðinu Strók. Að sjálfsögðu bar Dolles sigur úr býtum og urðu lokatölur leiksins 5-3. Liðið lék ágætlega á köflum og greinilegt að liðið ætlar sér langt í sumar.

Lið Dolles í leiknum var skipað: Skúli Einarsson (lánsmaður), Stefán Grétar, Benni, Jón Steinn, Trausti Þór, Kristján Eldjárn, Þorgnýr og Tryggvi Páll.

Mörk liðsins skoruðu: Stefán Grétar (hann skoraði með vinstri), Tryggvi Páll, Trausti Þór, Þorgnýr og Jón Steinn

Jákvætt: Liðið var að spila vel saman og menn virtust vera að finna taktinn í spilinu. 5 mörk voru skoruð í leiknum, hvert öðru fegurra.

Neikvætt: Liðið virðist ekki vera komið í sitt besta form og þurfa strákarnir greinilega að hlaupa meira á æfingum. Kristján Eldjárn tognaði illa en verður vonandi klár í næsta leik

Næsti leikur liðsins er fimmtudaginn 3. maí en þá tekur liðið á móti Narfa og fer sá leikur fram í Boganum og hefst klukkan 21:00.

Þá viljum við einnig bjóða Tryggva Kristjánson velkominn til liðsins en hann skrifaði undir samning um síðastliðina helgi og mun hann spila sinn fyrsta leik fyrir félagið næstkomandi fimmtudag á móti Narfa


Stjórnin
Dolles FC
Engin athugasemd

Ćfingaleikur nćstkomandi fimmtudag klukkan 21:00

24. apríl 2007 klukkan 12:56
Jæja góðir hálsar, þá er komið að því. Fyrsti leikur Dolles Fc er næstkomandi fimmtudag klukkan 21:00 í Boganum en þá tekur liðið æfingaleik við utandeildarliðið Strók. Annars er það að frétta úr herbúðum Dolles að leikmaður liðsins, Vilhelm Jensen, var tekinn í viðtal við sjónvarpsstöðina RÚV þar sem hann var sakaður um að vera einn af þeim fullorðnu karlmönnum sem reka litla krakka út af sparkvöllum bæjarins. Vilhelm kvaðst þó ekki hafa leikið þann leik eftir enda ekkert fúlmenni hér á ferð. Hvað varðar sjónvarpsrétt á æfingum Dolles þá er ekki víst hvort að RÚV hafi birt efnið með leyfi... meira um þetta mál síðar.

En aðalfréttin er sem fyrr þessi: DOLLES FC - STRÓKUR FIMMTUDAGINN 26. APRÍL Í BOGANUM.

Sjórnin
Dolles FC
2 athugasemdir